30.07.1915
Neðri deild: 20. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 886 í B-deild Alþingistíðinda. (1682)

41. mál, löggiltir vigtarmenn

Framsm. (Matthías Ólafsson):

Jeg get vel hugsað mjer, að nefndin sje fáanleg til að íhuga þessa brtt., þó að jeg reyndar ekki fái sjeð að vogarmenn sje neitt heppilegra. (Bjarni Jónsson: Það er rjettara). En vel má víst gjöra það háttv. þm. Dal. til þægðar, að þessir menn verði samnefndir honum.