14.09.1915
Neðri deild: 60. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1294 í B-deild Alþingistíðinda. (2069)

159. mál, verslunarstaður að Höfn í Sléttuhreppi

Forseti:

Það hefir komið ósk um að þetta mál verði tekið á dagskrá á þessum fundi, en til þess þarf afbrigði frá þingsköpunum, bæði vegna þess, að frumv. er of seint fram komið og hefir eigi legið nógu lengi frammi. Vil jeg því að fengnu leyfi hæstv. ráðherra, leita samþykkis deildarinnar til þessara afbrigða í einu lagi til allrar meðferðar málsins.

Leyfið veitt með 16 shlj. atkv.