12.08.1915
Efri deild: 30. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í B-deild Alþingistíðinda. (212)

30. mál, vörutollaframlenging

Kristinn Daníelsson:

Jeg tek í sama streng, því að jeg hygg, að menn þurfi nokkurn — tíma til þess að átta sig á brtt. Menn hefir áður greint mjög á um efni hennar, og sams konar tillaga var nýlega feld í hv. Nd. Jeg hygg því, að nú sje einmitt ástæða til að neyta þess ákvæðis í þingsköpum, að tillögum sje útbýtt daginn áður, og að rjett sje, að gefa mönnum tóm til umhugsunar, áður en gengið er til atkvæða um hana.