19.07.1915
Neðri deild: 10. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1380 í B-deild Alþingistíðinda. (2134)

24. mál, forkaupsréttur landssjóðs á jörðum

Sveinn Björnsson:

Það hefir verið stungið upp á því, að þessu frv. verði vísað til landbúnaðarnefndar. Ef þessi tillaga yrði samþykt, þá lægi fyrir að vísa frumv. á þgskj. 54, sem er líka eðlis, til sömu nefndar. En jeg álit bæði þetta frumv. og frumv. á þgskj. 54 svo stórt og mikilvægt, að ástæða sje til, að skipa sjerstaka nefnd í þau, auk þess, sem bæði frumv. snerta engu síður hag landsins í heild sinni en landbúnaðinn út af fyrir sig, Því er það tillaga mín, að skipuð sje sjerstök 5 manna nefnd í þetta mál.