19.07.1915
Neðri deild: 10. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1380 í B-deild Alþingistíðinda. (2135)

24. mál, forkaupsréttur landssjóðs á jörðum

Pjetur Jónsson:

Mjer þykir mjög mörgu snúa öfugt við nú. Frumv. um afnám forðagæslu var sett í sjerstaka nefnd. En nú er stungið upp á að vísa þessu frumv. til landbúnaðarnefndarinnar. Raunar hefði verið rjett, að hún hefði haft bæði þessi mál. Landbúnaðarnefnd undanfarandi þinga hefir einmitt haft slík mál til meðferðar. En úr því forðagæslumálið var á dögunum drifið í sjerstaka nefnd, á einmitt sú sama nefnd að fjalla um þetta. Annars getur komið fram hinn mesti glundroði.