26.07.1915
Neðri deild: 16. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1396 í B-deild Alþingistíðinda. (2160)
42. mál, Möðruvellir í Hörgárdal
Magnús Kristjánsson:
Það eru að eins örfáar athugasemdir út af ræðu háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.), sprottnar af því, að mjer virtist hann ekki fara algjörlega rjett með öll málsatriði.
Þessi jörð, Möðruvellir, er engum þeim höftum háð, að ekki megi selja hana; hún er ekki prestsetur, þótt prestur dvelji þar nú sem stendur.
En þar sem háttv. þingmanni þótti það óvarlegt, að veita stjórninni heimild — því að hjer er að eins um heimild að ræða, — til þess að selja hálflendu, af því að það hefði aldrei komið fyrir, að jarðarhlutar hafi verið seldir, þá verð jeg að segja það, að margt liti undarlega út, ef þingið gjörði aldrei neitt, sem ekki hafði verið áður gjört.
Um afskifti sýslunefndarinnar af þessu máli er það að segja, að ef hún hefði ekki lagt á móti því, þá mundi það auðvitað ekki hafa komið fram í þessu formi.
Hvort málinu verður vísað til nefndar, læt jeg mjer í litlu rúmi liggja. Landsstjórninni ætti að vera treystandi til að ráða fram úr þessu máli á viðeigandi hátt.