30.07.1915
Neðri deild: 20. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (2171)
42. mál, Möðruvellir í Hörgárdal
Magnús Kristjánsson:
Það eru að eins örfá orð, sem jeg vildi segja. Í rauninni tel jeg þýðingarlítið að ræða þetta mál mikið, og virðist mjer, að umræður þær, sem hjer hafa farið fram, ættu betur heima þegar rætt verður um breytingu á þjóðjarðasölulögunum.
Jeg vil að eins mótmæla því, sem hv. þm. S.-Þing. (P. J.) virtist leggja áherslu á, að svo framarlega sem sýslunefnd legði á móti sölu á þjóðjörð eða kirkjujörð, þá gæti ekki komið til nokkurra mála að selja hana. Jeg neita þessu algjörlega, því að þá væri niðurlag 2. gr. þjóðjarðasölulaganna algjörlega þýðingarlaust. Jeg skal svo ekki eyða fleiri orðum að því, sem þessi háttv. þm. (P. J.) sagði.
Jeg skal ekki heldur tala langt mál út af ræðu hv. þm. Mýr. (J. E.). Hann virtist ganga út frá því, að sýslunefndirnar ættu að sjálfsögðu að ráða meiru í þessu máli en Alþingi, og hreppsnefndir meiru en sýslunefndir. Ef þessum hugsanagangi er fylgt út í æsar, þá verður niðurstaðan sú, að ábúandinn sjálfur ætti að ráða mestu um það, hvort hann fengi ábýlisjörð sína keypta eða ekki.
Jeg skal svo ekki ræða málið frekar, með því að jeg tel það með öllu þýðingarlaust.