23.08.1915
Neðri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1583 í B-deild Alþingistíðinda. (2334)

116. mál, sóknargjöld

Ráðherra:

Mig minnir, að frumv. um sama efni sje í nefnd í Ed. Finst mjer þess vegna, að þetta frumv. hjer mætti bíða, uns hitt kemur úr nefndinni, og vil því skjóta því til hæstv. forseta, að taka málið út af dagskrá.