11.09.1915
Neðri deild: 57. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1693 í B-deild Alþingistíðinda. (2403)

140. mál, heimild til dýrtíðarráðstafana

Sveinn Björnsson:

Jeg get verið mjög stuttorður, vegna þess, að jeg hefi afráðið, að bíða með að láta brtt. þá, sem jeg hefi gjört við frumv., koma fram, þangað til við 3. umr. Jeg mun fyrir mitt leyti greiða atkvæði með frv. áfram, en að öðru leyti mun atkvæði mitt að lokum velta á því, hvort eitthvað líkt þessu kemst inn í það ellegar ekki.