27.08.1915
Neðri deild: 44. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1822 í B-deild Alþingistíðinda. (2530)
94. mál, vegalög
Pjetur Jónsson:
Jeg hefi skrifað undir nefndarálitið fyrirvaralaust, en er þó ekki að öllu leyti samþykkur nefndinni, þótt jeg hafi komið mjer saman við hana um aðalatriðin í brtt. þeim, sem hún kemur fram með. Það, sem jeg hefi að athuga við nefndarálitið, er upphafið á því. Það er ekki svo að skilja, að jeg telji ákvæði vegalaganna um viðhald vega óheppileg eða óhafandi, en jeg var á hinn bóginn ekki fráhverfur því, að finna mundi mega leið til hagkvæmari skiftingar á viðhaldskostnaðinum. Ekki það, að hreint og beint þyrfti nýtt skipulag, heldur að laga mætti það gamla. Aðra skoðun vil jeg ekki láta eigna mjer.
Jeg hefði gjarna viljað tala meira um þetta mál, en hefi haft alt of lítinn tíma til að hugsa það að nokkru ráði. Jeg sje ekki betur en að um það muni fara líkt og svo mörg önnur, að þau verða afgreidd í flýti, þegar haugað er inn á þingið svo mörgu í einu, að okkur, sem ekki erum því meiri vinnugarpar, er ofboðið með að fást við það alt saman. Það væri t. d. vert að athuga það, hvaða gjaldstofn ætti að finna handa sýslufjelögunum fyrir álögurnar til vega, en út í þá sálma sje jeg mjer ekki fært að fara nú, því miður.