20.08.1915
Neðri deild: 38. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1889 í B-deild Alþingistíðinda. (2575)

111. mál, yfirskoðunarmenn landsreikninganna

Framsm. (Magnús Kristjánsson):

Jeg hefi ekki haft tækifæri til að bera mig saman við landsreikninganefndina um þessa brtt., enda er það ekki von, því hún er ekki komin fram, fyrr en nú á síðustu stundu.

Jeg fyrir mitt leyti gjöri þetta ekki að neinu kappsmáli, en sje þó ekki, að komið hafi fram neinar verulegar ástæður fyrir þessu. Því þótt það sje skoðun fjárlaganefndarinnar, að hækka beri fæðispeninga starfsmanna landsins, þegar þeir eru á ferðalagi, þá er það ekki ástæða, sem að sjálfsögðu beri að taka til greina.