07.08.1915
Neðri deild: 27. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2257 í B-deild Alþingistíðinda. (2765)

22. mál, loftskeytastöð í Reykjavík

Ráðherra:

Jeg skal að eins gjöra þá stuttu athugasemd, að ef reisa ætti slíka stöð — sem ekki hefir orðið úr enn, þó að stjórnin hefði heimild til þess, — og áætlunin breyttist þá eitthvað eða efnið hækkaði í verði, þá kann ske rynni á menn tvær grímur, hvort hana bæri að reisa nú þegar, eða að fresta því til hagstæðari tíma.