10.09.1915
Neðri deild: 56. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2271 í B-deild Alþingistíðinda. (2775)

143. mál, útibú frá Landsbankanum á Austurlandi

Sigurður Eggerz:

Jeg ætla ekki að lengja umræðurnar eða endurtaka það, sem sagt hefir verið. En um dagskrána er það að segja, að hún fer fram á hið sama og stendur í lögunum, að útibúið skuli stofnað svo fljótt, sem auðið er. Jeg sje því ekki hvað háttv. 2. þm. N.-Múl. (J. J.) meinar með henni. Hún er, að jeg hygg, þýðingarlaus, en vitanlega í alla staði meinlaus, og því í raun og veru skaðlaust að samþykkja hana.