10.09.1915
Neðri deild: 56. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2297 í B-deild Alþingistíðinda. (2909)

Þinglenging

Forseti:

Með því að nú er liðinn sá tími, er þingið var framlengt um, og enn er ýmsum störfum þess ólokið, leyfi jeg mjer að fara þess á leit við hæstv. ráðherra, að hann samkvæmt umboði frá Hans hátign konunginum vilji leyfa, að þingið verði fyrst um sinn framlengt til mánudags 13. sept.