15.09.1915
Neðri deild: 63. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2297 í B-deild Alþingistíðinda. (2913)
Þinglok neðri deildar
Forseti:
Áður en jeg slít þessum síðasta fundi deildarinnar á þessu þingi, finn jeg mjer skylt, að þakka öllum hv. þingmönnum fyrir góða samvinnu og sjerstaklega skrifurum deildarinnar fyrir ágæta aðstoð. Sömuleiðis vil jeg þakka starfsmönnum þingsins, og þá aðallega skrifstofustjóra, fyrir vel unnið starf.