11.08.1915
Efri deild: 29. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í B-deild Alþingistíðinda. (346)

77. mál, vatnsveita

Framsm. (Kristinn Dan.):

Jeg hefi engu við það að bæta, sem jeg sagði um þetta mál við 2. umr. Þó hefir síðan komið fram ein brtt., á þgskj. 289, um að á eftir orðunum: „þar sem ekki er hægt“, sje bætt við „með kleifum kostnaði“. Nefndin hefir fallist á að gjöra þessa brtt. samkv. tilllögu frá einstökum þm. hjer í deildinni, við 2. umræðu; og eftir bendingu frá Krabbe verkfræðing. Vona jeg, að með þessari breytingu, sje frumv. kom- ið í það horf, að ekki verði að því fundið, og skal jeg svo ekki fjölyrða frekar um það.