17.08.1915
Efri deild: 35. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (604)

46. mál, sveitarstjórnarlög

Framsm. (Guðm. Ólafsson) :

Það er hjer brtt. frá mjer á þgskj. 365, og kemur hún í stað 3. brtt. á þgskj. 317, sem er tekin aftur. Það kom fram við umr. um þetta mál, að sú till. gat ekki staðist, og því hefi jeg komið með þessa till. í hennar stað. Jeg þarf ekki að skýra hana að neinu leyti, því að hún ræðir einungis um, hvernig beri að fylla út kjörseðlana. Svo hefir komið fram önnur brtt., og sje jeg ekki neitt athugavert við hana, ef varatill. verður samþ.