30.08.1915
Efri deild: 46. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 607 í B-deild Alþingistíðinda. (666)
91. mál, Þjóðskjalasafn Íslands
Forseti :
Athugasemd hins háttv. 5. kgk. þm. (G. B.) er öldungis rjett, en jeg tel ekki vera ástæðu til að vísa frumvarpinu frá fyrir þær sakir, meðal annars af því, að nýja stjórnarskráin er enn ekki komin í gildi. En jeg tel það óviðfeldið, og illa fari á því, að nota í frumvarpinu annað nafn en það, sem stjórnarskráin og er lögheiti. Jeg vænti því að háttv. nefnd lagfæri þetta.