07.09.1915
Efri deild: 54. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 608 í B-deild Alþingistíðinda. (668)
91. mál, Þjóðskjalasafn Íslands
Kristinn Daníelsson; Jeg get ekki betur sjeð, en að það sje á móti þingsköpunum, að deildin taki þetta mál til meðferðar, þar sem ekkert nefndarálit er enn þá komið. Meiri hluti nefndarinnar hefir sem sje ekkert látið til sín heyra enn þá; og þó að einn maður úr nefndinni hafi látið álit sitt uppi, á þgskj. 803, þá getur það ekki heitið nefndarálit, einkum þar sem hann skýrir þar frá, að nefndin hafi engan fund haldið. Jeg vil því leggja til að málið verði tekið út af dagskrá í þetta sinn, en um leið vil jeg láta þá von í ljós, að meiri hluti nefndarinnar komi sem fyrst með sitt álit. Jeg álít það ekki rjett að beita slíku kappi, að reyna til að þvinga mál fram á móti þingsköpunum, og hitt ekki heldur, ef nefndir beita þeirri aðferð, að sitja á málum; til þess að hefta framgang þeirra. Jeg fyrir mitt leyti lít svo á, að sá maður, sem hjer á hlut að máli, landsskjalavörðurinn, sje alls góðs maklegur fyrir mikið og vel unnið starf. Mjer þætti því illa farið, ef einhverjir hjer í deildinni vildu láta hann gjalda þess, að hann hefir komið öðru vísi fram í sumum málum en æskilegt væri. Jeg vil því leggja til, að meiri hl. nefndarinnar láti álit sitt koma sem fyrst, svo að málið geti þá gengið fram á eðlilegan hátt, og tækifæri fengist til að gjöra breytingar, sem þörf kynni að þykja á.