07.09.1915
Efri deild: 54. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í B-deild Alþingistíðinda. (673)
91. mál, Þjóðskjalasafn Íslands
Magnús Pjetursson:
Jeg ætla mjer ekki að blanda mjer inn í deilur um þetta frv., en af því að minst var á það, að frumvarp, sem jeg flutti, væri ekki enn komið úr nefnd, þá vil jeg geta þess, að það er mjer að kenna, og taldi jeg mjer sem flutningsmanni fullan rjett til þess, enda ætla jeg ekki að halda frv. áfram. Hæstv. forseta var kunnugt um þetta, og á hann því hjer enga sök á drættinum.