13.09.1915
Efri deild: 59. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í B-deild Alþingistíðinda. (798)

109. mál, skipun dýralækna

Magnús Pjetursson:

Jeg vil að eins benda á það, að það er í fullu samræmi við læknalögin, að láta lögin ekki öðlast gildi, fyrr en maður er fenginn til starfans. Það má líta svo á, sem það standi í frv., en það er óskýrt, en það mætti lagfæra við 3. umr.