06.09.1915
Efri deild: 53. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (908)

141. mál, þingfararkaup alþingismanna

Flutnm. (Guðmundur Björnson) :

Nú sting jeg upp á að umræðunum sje hætt, því þegar farið er að tala um uppskrúfaða ferðareikninga, þá er það óefað best, Alþingis sjálfs vegna, að slíta umræðum.