06.09.1915
Efri deild: 53. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í B-deild Alþingistíðinda. (910)

141. mál, þingfararkaup alþingismanna

Kristinn Daníelsson:

Jeg leyfi mjer að stinga upp á, að málinu sje heldur vísað til nefndar, en að það sje afgreitt með þessari rökstuddu dagskrá, því að jeg efast um, að deildin komist að þeirri niðurstöðu, að vilja vísa málinu til næsta þings, eins og dagskrá sú, sem hjer liggur fyrir, ætlast til.