14.09.1915
Efri deild: 61. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (933)
140. mál, heimild til dýrtíðarráðstafana
Framsm. (Björn Þorláksson) :
Mjer virðist bæði hv. þm. Vestm. (K. E.) og hv. 2. þm. Skagf. (J. B.), sem báðir eru með frv., hafi þó komist að þeirri niðurstöðu, að dýrtíð sje ekki eins mikil í landinu, og um hefir verið talað; en líka hafa þeir að vísu tekið það fram báðir, að sú dýrtíð gæti komið, að full þörf gjörðist að hlaupa undir bagga með ýmsum. En til þessa þarf ekki á neinum sjerstökum lögum að halda. Sveitastjórnarlögin heimila að veita þessa hjálp; og það er hægt að hjálpa á margan annan hátt en með beinum sveitarstyrk. Góðar sveitastjórnir láta sjer jafnan ant um að hjálpa þeim, sem í þröng eru, án þess að veita þeim beinan sveitarstyrk. Gjöra þær það ýmist með góðum ráðum, vinnuútvegun eða bráðabirgðalánum. Þessi lög eru því í rauninni alsendis óþörf. Jeg lýsi því yfir, að jeg er þeim með öllu mótfallinn, og það því fremur, sem þau geta stofnað sveitastjórnum í töluverðan vanda, eins og hv. 2. þm. G.-K. (K. D.) tók mjög greinilega fram.