31.08.1915
Efri deild: 47. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 807 í B-deild Alþingistíðinda. (937)

131. mál, vörutollur

Flutningsmaður (Guðm. Björnson):

Herra forseti! Jeg þarf ekki að fara neinum orðum um þetta mál; jeg hefi þegar talað fyrir því við næsta mál á undan, (Kaffi- og sykurtoll). Jeg vil leyfa mjer að stinga upp á, að máli þessu verði vísað til sömu nefndar, sem kosin var í það.