28.12.1916
Neðri deild: 7. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (107)

19. mál, æðsta umboðsstjórn landsins

Flutnm. (Matthías Ólafsson):

Viðvíkjandi athugasemd háttv. þm. Dala. (B. J.) um það, hver ráðherranna skyldi taka formensku í bankaráði Íslandsbanka, skal jeg taka það fram, að það atriði heyrir ekki undir stjórnarskipunarlögin, heldur er ákvæðið um það í lögunum um Íslandsbanka. Ákvæði um þetta yrði þá að flytjast í samráði við Íslandsbanka.