12.01.1917
Neðri deild: 24. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

47. mál, bann við sölu og leigu skipa úr landi

Jörundur Brynjólfsson:

Út af síðustu ummælum hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.), vil jeg taka það fram, að mitt atkvæði með þessu frv. þýðir ekki það, að stjórnin skuli ætíð veita undanþágu. Jeg get vel felt mig við brtt. hv. 2 þm. Árn. (E. A.), en tel samt sjálfsagt, að sölu skipa eigi ekki að leyfa, nema sjerstakar ástæður sje fyrir hendi.