04.01.1917
Neðri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í B-deild Alþingistíðinda. (396)

28. mál, verslunarlóð Bolungarvíkur

Flutnm. (Skúli Thoroddsen):

Jeg hefi engu að bæta við það, sem tekið er fram í ástæðunum fyrir frv.

Jeg álít þess ekki vera þörf, að málið sje lagt fyrir nefnd. Það er því ósk mín, að það fái að ganga umræðulaust og nefndarlaust gegnum þessa hv. deild.