09.01.1917
Neðri deild: 18. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í B-deild Alþingistíðinda. (479)

41. mál, skaðabætur til farþeganna á Flóru

Þórarinn Jónsson:

Jeg hefi enn ekki fengið fullnægjandi svar um það, hvort Englendingar hafa verið krafðir um skaðabætur þessar. En jeg verð að gjöra það að skilyrði fyrir atkvæði mínu, að stjórnin gangi ríkt eftir því, og eins vil jeg fá svör um það, hversu langt þetta mál er komið í þá átt, og hverju Bretar hafi svarað. Það sem þeir kunna að hafa sagt við landlækni, einhverjir ef til vill ábyrgðalausir menn, er valt að byggja á. Hverjir af farþegunum hafa verið á skemtiferð veit jeg ekki, en eðlilegt finst mjer, að allir vilji fá skaðabætur.