10.01.1917
Neðri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (519)

42. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslunnarmönnum landssjóðs

Magnús Guðmundsson:

Jeg skal taka það fram, að jeg hefi talað við alla flutningsmenn till, og eru þeir samdóma um, að hún eigi við nettótekjur. En nettótekjur eru þær tekjur, sem maður hefir, þegar frá er dreginn allur kostnaður við að afla teknanna.