09.01.1917
Neðri deild: 18. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 498 í B-deild Alþingistíðinda. (566)
36. mál, skipun landsbankastjórnarinnar
Forsætisráðh. (Jón Magnússon):
Jeg hefi það að athuga við þingsál.till. þessa í fyrsta lagi, að hún fer fram á það, að breyta lögum, og það virðist mjer ekki mega gjöra með þingsályktun. Um það er jeg samdóma háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.).
Mjer skildist sú vera tilætlun háttv. flutnm. (Þorst. J.), að landsstjórnin ætti að taka sjerstakt tillit til Fiskifjelagsins við veitingu annars bankastjóraembættisins, en Búnaðarfjelags Íslands og stjórnar samvinnufjelaganna við veitingu hins. Nú er oftast svo, að annað embættið, er veitt í einu. Ef nú hver stofnun mælir með sínum manni, er vandráðið, hverja till. taka skuli til greina. En ef till. á ekki að vera bindandi fyrir stjórnina, er hún meinlaus, og þá getur stjórnin ekki haft eins mikið á móti henni. En frá hálfu deildarinnar virðist mjer varla gjörlegt að samþykkja þingsályktunartill., sem ekki er ætlast til, að landsstjórnin taki til greina. Auk þess er till. óheppilega orðuð. Fáir menn þekkja alla atvinnuvegi landsins af eigin reynslu; og engin trygging er fyrir því, að maður sje fær til að vera bankastjóri, þótt við margt hafi verið riðinn. Því þætti mjer æskilegast, að till. væri tekin aftur.