06.01.1917
Neðri deild: 16. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í B-deild Alþingistíðinda. (583)

37. mál, lánveiting til raflýsingar á Ísafirði

Björn Stefánsson:

Jeg get engan veginn sjeð, að það sje sama og að drepa þetta mál, að vísa því til fjárveitinganefndar, þar sem þetta er fyrri umræða um málið, og síðari ekki fyr en á morgun. Finst mjer því fjárveitinganefndin hljóta að geta sint málinu eitthvað þangað til.

Mjer finst ekki ástæða til að svara því, sem háttv. þm. (Sk. Th.) sagði viðvíkjandi því, að mín beiðni væri annars eðlis en sú, sem hann hefir hjer gjörst talsmaður fyrir.