06.01.1917
Neðri deild: 16. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í B-deild Alþingistíðinda. (585)

37. mál, lánveiting til raflýsingar á Ísafirði

Björn Stefánsson:

Jeg heyri að það andar kalt frá háttv. þingdm. að þessari till. minni, að vísa þessu máli til fjárveitingarnefndar. Þeir skoða hana sem banatilræði við málið, en það átti hún alls ekki að vera. Fyrst einsætt er, að tillagan verður drepin við atkvæðagreiðsluna, þá þykir mjer eins gott að taka hana aftur.