12.01.1917
Neðri deild: 23. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í B-deild Alþingistíðinda. (59)
4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð
Gísli Sveinsson:
Jeg skal gefa þá yfirlýsingu, að það hefir lengi verið skoðun mín, að bankastofnun þessi hefði orðið aðnjótandi svo mikilla hlunninda hjá löggjöf vorri, að það bæri að gjöra allstrangar kröfur til hennar í mót. Jeg greiddi því atkvæði með brtt., sem samþykt var hjer í deildinni í gær. Þegar tillagan kom fram, þá bjóst eg við að heyra orð frá stjórninni um það, hvort það stæði á nokkurn veg fyrir framgangi málsins, ef hún yrði samþykt. En sú von brást. Jeg hlaut því að vera þeirrar skoðunar, að það gæti alls ekki hindrað neitt, að heimild þessi kæmi að fullum notum, og var því sjálfsagt, að tillagan yrði samþykt. En svo kom það undarlega í ljós, að annar þeirra hæstv. ráðherra, sem sæti eiga hjer í deildinni, greiddi atkvæði móti tillögunni, en hinn með henni, og væri æskilegt að fá vitneskju um, hvernig þetta beri að skilja. Um þetta mál, sem er ein af ráðstöfunum þeim, er ástand tímanna gjörir nauðsynlega, vil jeg fá greinilega yfirlýsingu frá hæstv. stjórn, hvernig hún líti á málið og breytingu þá, sem hjer í deildinni er gjörð á því. Vil eg benda hæstv. ráðuneyti á, að það væri ekki úr vegi, að það reyndi að komast að einhverri »einingu andans«, áður en það hrapar að tillögum og atkvæðagreiðslu um slík mál, sem þessi, svo að það »band friðarins«, sem hjer á að ríkja, geti haldist, þótt ekki sje nema deild úr deild, eða alla leið inn í sameinað þing.