11.01.1917
Neðri deild: 22. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í B-deild Alþingistíðinda. (644)

Þinglenging

Jörundur Brynjólfsson:

Ef þessi till. um framlenging þingsins hefði komið fram áður en búið var að ráða til lykta flestum merkustu málum þingsins, hefði jeg verið henni fylgjandi. En fyrst búið er að flaustra þeim af, tel jeg ekki ástæðu til að lengja þingið.