12.01.1917
Neðri deild: 26. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í B-deild Alþingistíðinda. (652)

Þinglok neðri deildar

Pjetur Jónsson:

Mjer finst eiga við að þakka hœstv. forseta fyrir góða og umburðarlynda stjórn og ákveðna og skýra úrskurði. Jeg tel ekki þurfa fleiri orð. Veit jeg, að háttv. þingmenn muni taka undir þessi orð mín með því að standa upp.

Þingmenn tóku undir þetta með því að standa upp.

Forseti þakkaði vingjarnleg ummœli þm. S.-Þ. (P. J.) í sinn garð, og virðingarvott af hálfu deildarmanna, og sagði síðan

fundi slitið.