11.01.1917
Sameinað þing: 3. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (678)

18. mál, rannsókn á hafnarstöðum

Sveinn Ólafsson:

Tillaga þessi hefir fengið eina breytingu í efri deild. Hefir þar verið bætt við tveim stöðum, Kollafirði og Garði, en er að öðru leyti söm og hún var afgreidd hjer frá deildinni. Jeg ætla mjer ekki að segja neitt við þessu; tel rjett, að fleiri staðir sjeu rannsakaðir en þeir, er upprunalega voru nefndir í tillögunni, sem sje svæðið frá Berufirði til Skinneyjarhöfða. Þess vegna verð jeg meðmæltur, að tillagan verði samþykt með þessum viðauka.