18.12.1916
Efri deild: 2. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (727)

4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð

Sigurður Eggerz:

Mjer virðist svo, sem allsherjarnefnd muni fá meira að gjöra á þessu þingi en fjárhagsnefnd, og því af þeirri ástæðu ekki rjett að leysa hana frá að fjalla um þetta mál, einkum þar sem jeg fæ ekki betur sjeð en að fjárhagur landsins og bankamálin sje hvort öðru svo nátengd, að rjett sje að þessi nefnd fjalli um hvorttveggja.