10.01.1917
Efri deild: 16. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í B-deild Alþingistíðinda. (809)
27. mál, strandferðaskip
Sigurður Eggerz:
Út af ummælum hv. þm. Ak. (M. K.) vil jeg geta þess, að frá frv. hálfu er ekkert því til fyrirstöðu, að skipið sje lengur í strandferðum en 8 mánuði, því í frv. stendur, að skipið skuli vera í strandferðum „minsta kosti“ 8 mánuði. Frumvarpið gefur því fremur en hitt undir fótinn um það, að hafa ferðirnar lengur.
Nefndinni var það og fyllilega ljóst, að vel gæti svo farið, að bæta þyrfti við 1. ferð.
Að öðru leyti skal jeg taka það fram, að jeg mun kalla nefndina saman til að athuga þetta frekar.