12.01.1917
Efri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í B-deild Alþingistíðinda. (894)

44. mál, útflutningsgjald af síld

Sigurður Eggerz:

Jeg vil taka í sama streng og háttv. 1. þm. Rang. (E. P.). Mjer finst varhugavert að fella þetta frv. Mjer hefir dottið í hug, að tollurinn yrði færður niður í 2 kr. til samkomulags.

Jeg mun ekki greiða dagskránni atkvæði mitt.