12.01.1917
Efri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í B-deild Alþingistíðinda. (895)
44. mál, útflutningsgjald af síld
Magnús Torfason:
Út af því, sem hv. þm. Vestm. (K. E ) sagði, vildi jeg taka það fram, að dagskráin er svo skýr, að engum mun dyljast, að hverju hún stefnir. Hún segir fullum orðum, að landsstjórnin skuli undirbúa málið, og hún hrópar svo hátt: Varaðu þig! að það ábyggilega heyrist um öll Norðurlönd.
Út af þeim orðum, sem fallið hafa hjer í deildinni, að þetta frumvarp eigi að samþykkja, þó að verðlaunafrv. sje fallið, vildi jeg geta þess, að mjer datt ekki í hug, að svona hár tollur yrði lagður á, án þess að leitað væri kjósendaálits. Og þar sem þetta er ekki fjárlagaþing, er slíkt víst eins dæmi í allri þingsögu vorri.