12.01.1917
Efri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í B-deild Alþingistíðinda. (902)

22. mál, fasteignamat

Karl Einarsson:

Jeg skil ekki, hvernig hv. þingdeildarmenn geta greitt slíkri dagskrá, sem hjer liggur fyrir, atkv. sitt, þar sem menn hafa ekki átt kost á að bera frv. saman við lögin. Vil jeg því leyfa mjer að koma fram með þá tillögu, að málinu verði, að þessari umr. lokinni, vísað til landbúnaðarnefndar.