05.01.1917
Efri deild: 12. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í B-deild Alþingistíðinda. (919)

18. mál, rannsókn á hafnarstöðum

Forseti:

Eftir að hafa talað við ráðherra, og með hliðsjón af kostnaði þeim, er rannsókn þessi væntanlega hefir í för með sjer, gjöri jeg það að tillögu minni, að hafðar sje 2 umræður um þingsáyktunartillögu þessa.