05.01.1917
Sameinað þing: 2. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í B-deild Alþingistíðinda. (977)

Minning Þórhalls biskups

Forseti:

Jeg leyfi mjer að skýra háttv. Alþingi frá því, að forsetar gáfu 50 krónur í nafni þingsins til Heilsubælisfjelagsins til heiðurs við minningu herra Þórhalls biskups Bjarnarsonar, og hafa forsetar fengið svo hljóðandi þakkarkveðju:

„Kœrar þakkir fyrir hluttekningu við fráfall Þórhalls biskups Bjarnarsonar.

Börn og tengdabörn“.