29.12.1916
Efri deild: 9. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í B-deild Alþingistíðinda. (982)

Þinglenging

Forseti:

Jeg verð að gjöra hv. deildarmönnum kunnugt, að á morgun er sá tími úti, er upphaflega var ætlaður þessu aukaþingi. En hæstv. ráðherra hefir skýrt mjer frá því, að Hans Hátign konungurinn hafi heimilað framlengingu til 31. janúar næsta ár, ef með þurfi.