20.12.1916
Efri deild: 3. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (984)

Heimfararleyfi þingmanns

Forseti:

Jeg vil geta þess að háttv. 1. þm. Rang. (E. P.) hefir beðið um heimfararleyfi milli jóla og nýárs, en samkv. þingsköpunum má forseti ekki veita lengra leyfi en 2 nátta; verð jeg því að leggja þessa beiðni undir atkvæði. Jeg skal geta þess, að jeg hefi talað við hæstv. forseta Nd. og býst hann við, að þörf geti orðið á þingfundum milli jóla og nýárs þar í deild, og jeg tel líklegt að sama verði hjer. Verður nú gengið til atkvæða um þessa beiðni.