08.01.1917
Efri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í B-deild Alþingistíðinda. (987)

Fastanefndir fylltar

Forseti:

Nú er dagskrá lokið, en jeg vakti athygli hæstv. deildar á því síðast, að nú þyrfti að kjósa 2 menn í fastanefndir, landbúnaðarnefnd og mentamálanefnd, í stað hæstv. ráðherra (S. J.), er sat í þeim nefndum. Vil jeg nú spyrja hæstv. deild, hvort hún hafi nokkrar tillögur á reiðum höndum.