08.01.1917
Efri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í B-deild Alþingistíðinda. (991)

Fastanefndir fylltar

Magnús Torfason:

Jeg ætla að eins að gjöra þá athugasemd við þetta, að það, að enginn maður er afgangs, er ekki þingsköpunum að kenna, heldur hinu, að 5 menn skipa samgöngumálanefndina.

Enn fremur vildi jeg gjöra þá athugasemd, að þingheiti mitt er þingmaður Ísafjarðar, en ekki þingmaður Ísafjarðarkaupstaðar.

Í mentamálanefnd var í einu hljóði kosinn Kristinn Daníelsson, 2. þm. G.-K.