08.01.1917
Efri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (993)

Skipun skrifstofustjóra

Forseti:

Áður en gengið er til dagskrár vil jeg skýra hæstv. Ed. Alþingis frá því, að forsetar þingsins hafa, allir í sameiningu, ráðið og skipað Einar Þorkelsson skrifstofustjóra Alþingis, samkvæmt 11. gr. þingskapanna, fyrir tímabilið frá 1. janúar 1917 til 31. desember 1923, og jafnframt samið og sett erindisbrjef fyrir hann 4. þ. m., samkvæmt fyrirmælum sömu greinar þingskapanna.