24.08.1917
Efri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1279 í B-deild Alþingistíðinda. (1025)

64. mál, tollalög

Frsm. (Sigurður Eggerz):

Jeg fæ ekki sjeð að í sjálfu sjer sje neitt á móti því, að hækka tollinn á vindlum og vindlingum, eins og háttv. þm. Ísaf. (M. T.) drap á. En mjer virðist sem honum muni ekki hafa verið nein veruleg alvara um það mál, fyrst að hann hefir ekki komið með neina brtt. í þá átt fyrir þessa umr. Honum hefði verið það í lófa lagið, en hann hefir ekki gert það, og bendir það ekki á, að honum sje það mikið kappsmál.